Auglýst útboð

Rekstur almenningssamgangna á landi á landsbyggðinni

25.8.2023

Vegagerðin býður hér með út þjónustuverkið „Rekstur almenningssamgangna á landi á landsbyggðinni". Útboði þjónustuverksins er skipt upp í eftirfarandi 3 verkhluta:    

Verkhluti 1: Almenningssamgöngur á Vesturlandi og Norðurlandi 

Verkhluti 3: Almenningssamgöngur á Suðurlandi 

Verkhluti 4: Almenningssamgöngur á Suðurnesjum 

Heimilt er að gera tilboð í einstaka verkhluta eða alla þrjá verkhlutana. Einstökum verkhlutum verður ekki skipt upp. Ekki er heimilt með frávikstilboði að gera tilboð í aðra tilhögun þjónustuverksins en þá sem lýst er í útboðsgögnum. 

Til þjónustuverksins heyrir m.a. útvegun skilgreindra rekstrarvagna og fjármögnun þeirra ásamt viðhaldi og rekstri. Óskað er eftir tilboðum frá aðilum sem geta uppfyllt kröfur laga nr. 28/2017 um farþega- og farmflutninga. Samningstími er 1 ár með möguleika á einni framlengingu til 1 árs. 

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 25. ágúst 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 269. september 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.