Auglýst útboð

Ólafsvík – Stækkun og hækkun harðviðarbryggju 2023

5.7.2023

Hafnir Snæfellsbæjar bjóða hér með út stækkun og hækkun harðviðarbryggju í Ólafsvíkurhöfn. Helstu verkþættir eru:
  • Fjarlægja núverandi dekk- og þybbuklæðingu af núverandi bryggju. 
  • Reka niður 15 bryggjustaura úr Greenheart harðvið.
  • Stækkun um 200 m² og hækkun um 180 m2 bryggju úr Greenheart harðvið.

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. maí 2024

Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum  5. júlí  2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. júlí 2023. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð. 

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign