Auglýst útboð

Norðausturvegur (85) um Skjálfandafljót, hönnun

9.1.2024

Vegagerðin býður hér með út for- og verkhönnun ný- og endurbyggingar Norðausturvegar (85) um Skjálfandafljót. Kaflinn er um 9 km langur og nær frá Torfunesi að sunnanverðu og norður fyrir vegamót Norðausturvegar og
Aðaldalsvegar (845). Innifalið í verkinu er hönnun vega, vegamóta og gerð útboðsgagna.
Á vegkaflanum eru fimm vegamót, ein stærri t-vegamót við Norðausturveg og Aðaldalsveg ásamt fjórum minni tengingum. Í heild er vegagerð um 10 km. Hönnun brúa um Skjálfandafljót og Rangá er ekki hluti verksins.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og á grundvelli matsþátta og verðs . Ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum  9. janúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. febrúar 2024.

Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þann 27 febrúar 2024 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign