Auglýst útboð

Njarðvíkurhöfn - Suðursvæði, dýpkun hafnar 2024

6.3.2024

Reykjaneshöfn óskar eftir tilboðum í verkið „Njarðvíkurhöfn Suðursvæði, dýpkun hafnar 2024“.

Helstu verkþættir eru:

·         Dýpkun hafnar um 31.000 m3.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 6.  mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. mars 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.