Auglýst útboð

Húnabyggð, Skagaströnd og Skagabyggð, sjóvarnir 2023

6.9.2023

Vegagerðin býður hér með út gerð sjóvarna í sveitarfélögunum Húnabyggð, Skagaströnd og
Skagabyggð, á alls fimm köflum í sveitarfélögunum.  Heildarlengd sjóvarnar er um 900 m.

Helstu magntölur: 

  • Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 9.000 m3
  • Vinnsla efnis á lager um 4.500 m3

 Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2024.

Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 6. september 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. september 2023. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð. 

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign