Eyrarfjallsvegur (460), Fell – Bær
Vegagerðin býður hér með út uppbyggingu, breikkun og klæðingu Eyrarfjallsvegar (460), frá slitlagsenda nærri Felli í áttina að Bæ.
Heildarlengd útboðskaflans er um 1,45 km.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 1.600 m3
- Netgirðingar 1.220 m
- Fyllingar 2.000 m3
- Styrktarlag 0/63 2.300 m3
- Burðarlag 0/22 1.550 m3
- Tvöföld klæðing 9.200 m2
- Frágangur fláa 10.100 m2
- Skurðir 440 m
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. september 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 30. maí 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. júní 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.