Efnisvinnslu á Vestursvæði 2024, Fossamelar
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu í námunni Fossamelar 2. Um er að ræða sprengt berg í efnishaug til vinnslu flokkaðs klæðingarefnis og hálkuvarnarsands.
Helstu magntölur:
- Klæðingarefni 11/14 1.400 m3
- Klæðingarefni 8/11 1.300 m3
- Klæðingarefni 4/8 900 m3
- Hálkuvarnarefni
2/6 1.200
m3
Verki skal að
fullu lokið 15. ágúst 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 8. mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. apríl 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.