Dagverðareyrarvegur (816) Hlaðir - Tréstaðir
Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu Dagverðareyrarvegar (816) frá Hlöðum að Tréstöðum, samtals um 1,55 km.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 2.480 m3
- Fyllingar 1.680 m3
- Fláafleygar 970 m3
- Styrktarlag (neðra burðarlag) 2.090 m3
- Óbundið burðarlag (efra burðarlag) 3.100 m3
- Tvöföld klæðing 9.970 m2
- Ræsalögn 62 m
- Frágangur fláa 14.480 m3
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni, Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri og í móttöku Vegagerðarinnar, Borgartúni 7, 105 Reykjavík frá og með mánudeginum 8. maí, 2017.
Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. maí 2017 og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð á sömu stöðum að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.