Auglýst útboð
Brýr á Hólá og Stigá – smíði stálbita
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í smíði stálbita fyrir nýjar brýr á Hóla og Stigá á Hringvegi. Ryðverja skal stálið og því skilað á verkstað í samráði við verkkaupa.
Helstu magntölur eru:
Brú á Hólá
- Stálvirki 12,6
tonn
- Ryðvörn
133,7 m2
- Flutningur
stálbita 12,6 tonn
Brú á Stigá
- Stálvirki 12,6
tonn
- Ryðvörn
133,7 m2
- Flutningur stálbita
12,6
tonn
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 12. febrúar 2018.
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með 25. október 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. nóvember 2017 og verða þau opnuð þar 14:15 þann dag.