Auglýst útboð
Almannaskarðsgöng, uppsetning búnaðar
Vegagerðin býður hér með út uppsetningu á neyðarsímaskápum og klefum, fjarskiptabúnaði, endurnýjun skilta og stjórnkerfis, uppsetningu og tengingu varaafls og rafbúnaðar í Almannaskarðsgöngum á Hringvegi (1).Helstu magntölur verksins eru eftirfarandi:
Stjórnskápar breytingar 2 stk.
Neyðarsímaklefar uppsetning 2 stk.
Skilti í göngum 24 stk.
Nemar 3 stk.
Tæknirými utan ganga raflagnir 1 stk.
Varaaflgjafar 3. fasa uppsetning 2 stk.
Ljós í göngum, uppsetning 153 stk.
Ljós utan ganga, uppsetning 10 stk.
Lagning og tenging ljósleiðara 4.570 m
Lagning og tenging strengja 9.500 m
Lagning og tenging leks coax 1.300 m
Lagning ídráttarröra 510 m
Myndavélar AID og PTZ 29 stk.
Kantljós 31 stk.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. maí 2024.
Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá
og með mánudeginum 4. desember 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í
því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. desember 2023.
Ekki
verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests
verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign