Auglýst útboð

Áætlunarflug á Íslandi - sérleyfissamningur: Reykjavík – Hornafjörður – Reykjavík 2024-2027

11.3.2024

Vegagerðin býður hér með út rekstur á áætlunarflugi á Íslandi - sérleyfissamningur, á eftirfarandi
flugleið:
      1. Reykjavík – Hornafjörður – Reykjavík
Endurgreiðslu kostnaðar sem af rekstri í áætlunarflugi leiðir að frádregnum tekjum, þ.e. að annast áætlunarflug með farþega og vörur til og frá Hornafirði, fer samkvæmt nánari skilgreiningu í útboðslýsingu.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 11.  mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. apríl 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.