Færsla Hringvegar (1) um Mýrdal - umhverfismatsskýrsla
Vegagerðin áformar uppbyggingu á Hringvegi (1-b2_b4) um Mýrdal. Umferð um núverandi veg hefur aukist umtalsvert undanfarin ár, jafnframt hefur þéttbýlið í Vík stækkað með tilheyrandi umferð óvarinna vegfarenda yfir og við veginn. Í samræmi við lögbundið hlutverk Vegagerðarinnar er þörf á að stuðla að auknu umferðaröryggi og greiðfærni allrar umferðar og vöruflutninga um Hringveginn.
Markmið framkvæmdar felast í eftirfarandi þáttum:
- Umferðaröryggi (lega vegarins) með bættum vegtæknilegum eiginleikum (sjónlengdir, beygjur, halli, fækkun vegtenginga).
- Greiðfærni á veturna fyrir alla umferð og vöruflutninga.
- Þjóðvegur út úr þéttbýli sem bætir öryggi og hljóðvist í þéttbýli.
- Stytting Hringvegar.
Í Samgönguáætlun 2020-2024 er gert ráð fyrir fjármagni í undirbúning vegna 13,3 kílómetra vegagerðar um Mýrdal og Víkurþorp ásamt jarðgöngum í gegnum Reynisfjall. Umfang framkvæmdarinnar er slíkt að hún er matsskyld skv. lögum nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana (áður lög nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum) og því leggur Vegagerðin fram þessa umhverfismatsskýrslu. Í samræmi umhverfismatslögin er í skýrslunni gerð grein fyrir raunhæfum valkostum sem Vegagerðin hefur kannað. Valkostir eru sex talsins, auk núllkosts, og fela þrír valkostir í sér jarðgöng og þrír fela í sér endurbætur á núverandi Hringvegi að einhverjum hluta.
Kynning á umhverfismatsskýrslunni fer fram á Skipulagsgátt
Skipulagsstofnunar og er kynningartími frá 1. desember til 29. janúar
og er opið fyrir athugasemdir á þeim tíma. Haldinn verður kynningarfundur
á Vík í Mýrdal í janúar, 2024, dagsetning mun vera auglýst síðar.
Umhverfismatsskýrslan
Samantekt á íslensku
Samantekt á ensku
Viðaukar:
- Yfirlitskort
- Skýringarkort - fornleifar
- Valkostur 1 C teikningar
- Valkostur 1b C teikningar
- Valkostur 2 C teikningar
- Valkostur 3 C teikningar
- Valkostur 4 C teikningar
- Valkostur 4b C teikningar
- Valkostur 5 teikningar
- Jarðmyndanir og ofanflóð
- Veðurfar
- Kostnaður
- Umferðarspá
- Umferðaröryggismat
- Vatnafar
- Vatnalífríki
- Náttúrufræðistofnun
- Hljóðvist
- Fornleifaskráning
- Ferðaþjónusta