Fréttir
  • Ný Vestmannaeyjaferja

Útboð Vestmannaeyjaferju - hægt að nálgast gögn

tilboð opnuð 25. ágúst nk.

15.6.2016

Frá og með 15. júní má sækja útboðsgögn vegna Vestmannaeyjaferju en tilkynnt var um útboðið í síðustu viku. Þar kom fram að Ríkiskaup, fyrir hönd Vegagerðarinnar óskar eftir tilboðum í smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju eða smíði og rekstur nýrrar ferju til 12 ára.  Þessi tveir kostir verða síðan  bornir saman og út frá þeim samanburði valinn einn samningsaðili.  Þar af leiðandi er útboðinu skipt í tvo hluta.

Annars vegar er óskað eftir tilboðum í smíði á nýrri ferju til fólks-, bíla- og vöruflutninga milli  Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Ferjan á að vera um 70 metra löng, 14 metra breið, geta flutt allt að 73 fólksbíla og allt að 540 farþega og vera með djúpristu um 2,8m. Til samanburðar þá getur Herjólfur flutt innan við 56 bifreiða, allt að 525 farþega og er með djúpristu 4,2m.  Nýja ferjan skal vera með tveimur Azipull skrúfum sem gefur henni mikla stjórnhæfni við erfiðar aðstæður.

Hinsvegar er óskað eftir tilboðum í einkaframkvæmd, þ.e. að þjónustuaðili eigi, og byggi ferju í samræmi við lýsingu á ferjunni hér að ofan og annist rekstur ferjunnar milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja

Vegagerðin býður því út tvo kosti við lausn á þessu verkefni og mun að loknu útboði velja þann kost sem reynist hagkvæmari.

Útboðsgögn verða til afhendingar hjá Ríkiskaupum frá og með miðvikudeginum 15. júní og er stefnt að opna tilboðin fimmtudaginn 25. ágúst nk.  Gert er ráð fyrir að nýja ferjan hefji siglingar milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyjar síðla sumars 2018.

Meðfylgjandi er frekara kynningarefni og myndir/teikningar. Útboðið fór fram hjá Ríkiskaupum .