Sprenging í umferðinni á gullna hringnum
allt að áttatíu prósenta aukning á sumarumferðinni - eigi að síður er minna viðhaldsfé í ár en í fyrra
Umferðin eykst um allt land svo sem komið hefur fram í fréttum Vegagerðarinnar. Algengar ferðamannaleiðir eru alls ekki undanskyldar. Reikna má með að í ár aukist umferðin um Gullfoss og Geysi um heil 70 prósent sem er fáheyrð aukning. Sama á við um Lyngdalsheiðina.
Það er augljóst að fjölgun ferðamanna til Íslands skilar sér beint í aukningu á umferðinni á gullna hringnum. Ekki annað en að sjá að þangað fari töluvert hátt hlutfall allra ferðamanna.
Gullfoss -- GeysirGríðarleg aukning mælist á umferð um teljara Vegagerðarinnar við Myrkholt við Gullfoss og Geysi. Það sem af er ári hefur umferðin á þessum stað aukist um 51%. Ef umferðin hegðar sér svipað og undanfarin ár má búast við tæplega 70% aukningu á árdagsumferðinni (ÁDU sem er meðaltals umferð alla daga ársins) og vetrardagsumferðinni (VDU) en um 80% aukningu á sumardagsumferðinni (SDU). Þetta er fáséð aukning á milli ára en þó verður hennar helst vart á einstaka stöðum á Suðurlandi.
Lyngdalsheiði og fleiri staðirBúast má við mikilli aukningu umferðar á öllum gullna hringnum ekki bara á milli Gullfoss og Geysis. Miðað við það sem liðið er af árinu 2016 má búast við eftirfarandi aukningu í ár miðað við síðasta ár:
Teljari | Aukning |
---|---|
Mosfellsdalur | 20 % |
Mosfellsheiði | 45 % |
Gjábakki | 40 % |
Lyngdalsheiði | 70 % |
Gullfoss & Geysir | 70 % |
Í venjulegu árferði mætti eiga von á að teljarinn á Lyngdalsheiði og við Gullfoss/Geysi væru bilaður en svo er ekki.
Varla þarf að minna á að fjármagn til viðhalds vega hefur ekki verið aukið neitt, þrátt fyrir sprengingu í umferð síðustu misseri. Þvert á móti er fjárveitingin á þessu ári 500 m.kr. lægri en var árið 2015.