Fréttir
  • Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2016

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2017

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar föstudaginn 27. október 2017.

6.10.2017

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í Hörpu, föstudaginn 27. október 2017. 

Þetta er sextánda ráðstefnan, en kveðið er á í vegalögum um að 1,5% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs og er ráðstefnunni ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess starfs.

Vegagerðin vinnur að innleiðingu Grænna skrefa í ríkisrekstri og hvetur þátttakendur til huga að lágmörkun umhverfisáhrifa, svo sem með notum á vistvænum ferðamáta til og frá ráðstefnunni og taka þátt í úrgangsflokkun á staðnum.

Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á þessum hlekk .

Þátttökugjald er 15.000 krónur og 4.000 krónur fyrir nema og eftirlaunaþega.

Dagskrá ráðstefnunnar.

 

  Rannsóknir Vegagerðarinnar 2017 
08:00 - 09:00    Skráning 
09:00 - 09:15 Setning, Þórir Ingason (Vegagerðin)
09:15 - 09:30 Endurvinnsla steypu í burðarlög vega, Þorbjörg Sævarsdóttir (Efla). Ágrip
09:30 - 09:45 Efni til innþéttingar sprungna í slitlagi brúa, Gísli Guðmundsson, (Mannvit). Ágrip
09:45 - 10:00 Yfirborðsmerkingar, ending og efnisnotkun, 
Arna Kristjánsdóttir og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, (Efla). Ágrip
10:00 - 10:15 Samband lektar og bergstyrks í storkubergi, Guðjón Eggertsson (University of Liverpool). Ágrip
10:15 - 10:45 Kaffi
10:45 - 11:00 Brotholur í malbiki, Ólafur Wallevik, Ásbjörn Jóhannesson og Hafsteinn Hilmarsson 
(Nýsköpunarmiðstöð Íslands). Ágrip
11:00 - 11:15 Yfirborð brúa, Gylfi Sigurðsson (Vegagerðin). Ágrip
11:15 - 11:30 Stífnieiginleikar jarðvegs metnir með greiningu yfirborðsbylgna, Elín Ásta Ólafsdóttir, 
Sigurður Erlingsson, Bjarni Bessason,  (Háskóli Íslands). Ágrip
11:30 - 11:45 Leiðsaga til sjós og staðsetningar á Íslandi með aðstoð gervitungla, 
Sæmundur Þorsteinsson (Háskóli Íslands). Ágrip
11:45 - 12:00 Umræður og fyrirspurnir
12:00 - 13:00 Matur
13:00 - 13:15 Kortlagning veghita með áherslu á hálkustaði, Elín Björk Jónasdóttir (Veðurstofan). Ágrip
13:15 - 13:30 Meðalhraðaeftirlit - innleiðingaráætlun, Vilhjálmur Hilmarsson (Mannvit). Ágrip
13:30 - 13:45 Ferðir á einstakling - Samanburðarathuganir á gerð og úrvinnslu 
ferðavenjukannana hérlendis og erlendis, Smári Ólafsson (VSÓ). Ágrip
13:45 - 14:00 Tenging hjólanets höfuðborgarsvæðis við umliggjandi þjóðvegi, Hörður Bjarnason (Mannvit). Ágrip
14:00 - 14:15 Talningar á hjólreiðaumferð - bætt aðferðarfræði talninga með leitun til nágrannalanda, 
Kristjana Erna Pálsdóttir (VSÓ). Ágrip
14:15 - 14:30 Plastic recycled in roads: feasibility study on the use of plastic waste 
for road paving in Iceland, Jamie McQuilkin (ReSource International) - [erindi flutt á ensku]. Ágrip
14:30 - 14:45 Umræður og fyrirspurnir
14:45 - 15:15 Kaffi 
15:15 - 15:30 Umhverfisvitund starfsmanna stofnana og fyrirtækja - mæling og þróun, 
Ólöf Kristjánsdóttir og Sandra Rán Ásgrímsdóttir (Mannvit). Ágrip
15:30 - 15:45 Greining á vistvottunarkerfum fyrir innviðaverkefni Vegagerðarinnar, Gyða Mjöll Ingólfsdóttir (Efla). Ágrip
15:45 - 16:00 Sjálfbærnismat á leiðum til aukinnar rafmagnsvæðingar í samgöngum, 
Reza Fazeli (Háskóli Íslands) - [erindi flutt á ensku]. Ágrip
16:00 - 16:15 Mat á árangri endurheimtar votlendis, Þórdís Björt Sigþórsdóttir (Háskóli Íslands). Ágrip
16:15 - 16:30 Grímsvatnahlaup: vatnsgeymir, upphaf og rennsli, Finnur Pálsson (Háskóli Íslands) [Erindið fellur niður]
16:30 - 16:45 Setflutningar og farvegabreytingar Leirár á Mýrdalssandi, Magnús T. Guðmundsson (Háskóli Íslands).
Ágrip
16:45 - 17:00 Umræður og fyrirspurnir
17:00 -  Ráðstefnuslit, léttar veitingar í boði Vegagerðarinnar
   
  Glærur og ágrip fyrirlestra verður hægt að finna á vef Vegagerðarinnar að ráðstefnu lokinni