Fréttir
  • Gleðileg jól

Þjónustan um jólin

þjónusta Vegagerðarinnar yfir hátíðirnar

22.12.2014

Þjónustan um jól og áramót verður þannig að einungis á þeim leiðum sem hafa 7 daga þjónustu verður þjónusta á jóla- og nýársdag, undanskildar eru þó langleiðir um strjálbýl svæði milli byggðarlaga. Stefnt er að því að þá verði þessar leiðir almennt færar upp úr kl. 10:00. 

Á aðfangadag og gamlársdag er gert ráð fyrir þjónustu til kl. 14:00 en ef þörf krefur til kl. 16:00. Það á þó ekki við um lengstu leiðir svo sem á Djúpvegi frá Súðavík til Hólmavíkur, Vestfjarðarvegi austan Brjánslækjar, frá Mývatni til Egilsstaða og frá Höfn til Víkur. Þar hættir þjónusta í síðasta lagi kl. 14:00.  

Á annan í jólum verður þjónusta á öllum leiðum samkvæmt almennum snjómokstursreglum. 

Færð á vegum er ekki könnuð á vettvangi nema á umferðarþyngstu vegum. Upplýsingar um færð og veður taka annars mið af gögnum frá veðurstöðvum og myndavélum.

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 1777 hjá umferðarþjónustu Vegagerðarinnar.

Vegagerðin óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Gleðileg jól