Fréttir
  • Höfuðborgarsvæðið umferðin eftir mánuðum
  • Höfuðborgarsvæðið umferðin með spá út árið

Umferðin eykst á höfuðborgarsvæðinu

reiknað er með að umferðin í ár aukist um 3,3 prósent

2.12.2014

Umferðin um þrjú mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst um þrjú prósent í nóvember. Nú reiknar Vegagerðin með að umferðin á svæðinu í ár aukist um 3,3 prósent og verði mesta umferð sem mælst hefur á einu ári hingað til.


Milli mánaða, 2013 og 2014.
Áætlað er að umferðin hafi aukist um 3% á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum mánuði borið saman við sama mánuð árið 2013. Þótt umferðin hafi aukist aðeins minna en gert var ráð fyrir, við síðustu mánaðarmót, þarf að leita allt aftur til ársins 2007 til að finna meiri aukningu milli nóvember mánaða. Líkt og á Hringvegi hefur umferð aukist að jafnaði um 1,7% í nóvember, á milli ára, á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2005. Þessi aukning nú er því tæplega tvöfalt meiri en meðaltalið.

Frá áramótum milli áranna 2013 og 2014.
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu hefur nú aukist um 3,3% frá áramótum borið saman við sama tímabil árið 2013, ef marka má þessi þrjú mælisnið Vegagerðarinnar.  Þetta er mesta aukning milli ára miðað við árstíma síðan árið 2007.

Horfur út árið 2014.
Samkvæmt reiknilíkani umferðardeildar Vegagerðarinnar er staðan orðin þannig að umferðin í desember 2014, má dragast saman um 13,5% miðað við síðasta ár til þess að heildarumferðin endi á pari við síðasta ár. Þessi sviðsmynd verður að teljast afar ólíkleg því má nánast slá því föstu að nýtt met verði slegið í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu nú í ár, eins og fyrri spár höfðu bent til. Mestar líkur eru til þess að heildarumferðin verði um 3,0 - 3,5% meiri en hún var á síðasta ári sem myndi þýða um 1 - 1,5% meiri umferð en met árið 2008. 

Mikil fylgni er á milli hagvaxtar og umferðar á höfuðborgarsvæðinu (sjá mynd), reiknað er með að umferðin aukist í ár um 3,3% sem er þá í góðu samræmi við hagvaxtarspá Seðlabanka Íslands uppá 3,5%.