Fréttir
Aðrir ferðamátar en einkabílinn sækja á
samkvæmt viðhorfskönnun um ferðir að sumri sem Land-ráð sf. vann fyrir Vegagerðina
Þeim fjölgar sem fara ferða sinna gangandi, hjólandi eða með strætó á höfuðborgarsvæðinu. Jafnmargir ferðast á einkabíl sumarið 2014 og gerðu 2012 eða 75 prósent en þeir voru 87 prósent árið 2007. Þetta er ein af mörgum niðurstöðum í viðhorfskönnun Land-ráðs sf um sumarferðir 2014.
Eins og sést á línuriti sem fylgir fréttinni þá ferðuðust 87 prósent yfirleitt með einkabíl á höfuðborgarsvæðinu árið 2007 og fækkar þeim jafnt og þétt til ársins 2012 þegar 75 prósent ferðast með einkabíl sem er sama hlutfall og í ár.
Einnig sést að ríflega 8 prósent ferðast á hjóli samanborið við 5 prósent árið 2010 og einungis 2 prósent árið 2008. Þá fara núna 7,6 prósent með strætisvögnum en voru 4 prósent 2010 og 5 prósent 2008. Nú fara tæp 6 prósent fótgangandi en þeir voru jafnmargir eða 6 prósent 2010 og 3 prósent 2008.
Könnunin er unnin fyrir styrk úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar og má finna hana og aðrar rannsóknaskýrslur hér á vefnum sem og aðrar kannanir Land-ráðs. Sjá rannsóknaskýrslur, til dæmis þessa nýjustu Sumarferðir 2014 og samsvarandi könnun frá 2010 Sumarferðir 2010.
Helstu niðurstöður eru annars þessar:
Ferðir út fyrir sveitarfélag.
- Heldur dró úr meðalfjölda ferða út fyrir búsetusvæðið sumarið 2014 borið saman við fyrri kannanir. Sérstaklega á þetta við um ferðir frá höfuðborgarsvæðinu.
- Notkun einkabílsins er heldur að dragast saman og fleiri ferðast sem farþegar í bíl.
- Um 8% svarenda notaði Strætó í ferðum út fyrir búsetusvæði og var meðalfjöldi ferða 4,5.
- 11% svarenda töldu að fjöldi erlendra ferðamanna sumarið 2014 hafi haft áhrif á ferðavenjur sínar. Alengast var að svarendur sögðust hafa forðast fjölsótta ferðamannastaði.
- Flestir vilja sjá fleiri jarðgöng á landsbyggðinni, umbætur á hringveginum og bætta almenningsvagnaþjónustu.
Innanlandsflug.
- Töluvert hefur dregið úr innanlandsflugi miðað við fyrri kannanir. Svarendur í landsbyggðarkjörnum nota innanlandsflug að jafnaði 4,4 sinnum og íbúar höfuðborgarsvæðis 0,9 sinnum.
- Um 62% svarenda vill ekki flytja miðstöð innanlandsflugs úr Vatnsmýri. Sama á við 54% svarenda á höfuðborgarsvæði og 51% Reykvíkinga.
- Flestir þeirra sem heimsækja höfuðborgarsvæðið eiga erindi vestan Elliðaárvogar, sérstaklega í miðborginni.
Ferðavenjur á höfuðborgarsvæðinu.
- Meðalferðatími er að lengjast á höfuðborgarsvæðinu. Er tæplega 13 mínútur sumarið 2014.
- Notkun einkabílsins hefur verið að dragast saman úr 87% allra ferða 2007 í 75% 2014.
- Svarendur sem búa í eða nærri miðborginni bæði ganga og hjóla meira en aðrir svarendur á höfuðborgarsvæðinu.
- Þeir sem nota meira aðra ferðamáta en einkabílinn 2014 ganga og hjóla meira en áður. Tæp 8% nota yfirleitt Strætó.
- Flestir svarendur á höfuðborgarsvæðinu vilja sjá aukna áherslu á umbætur á stofnbrautakerfinu, bætta þjónustu Strætó og umbætur á göngu- og hjólaleiðum.
- Áhersla á umbætur á stofnbrautakerfinu hefur minnkað frá 2007 þegar flestir nefndu þann kost, en er vaxandi samkvæmt könnun 2014.