Sprengisandsleið - opið hús í Reykjavík og á Akureyri
opið hús verður í Reykjavík á fimmtudag og á þriðjudag á Akureyri
Drög að tillögu að matsáætlun vegna Sprengisandsleiðar verða kynnt á opnu húsi í Reykjavík fimmtudaginn 13. nóvember og á Akureyri 18. nóvember. Kynningin fer fram með útprentuðum gögnum og á skjávörpum og fulltrúar Vegagerðarinnar og Landsnets ræða við gesti. Áður hefur opið hús verið haldið í Ljósvetningabúð í Þingeyjarsveit og á Hellu.
Vegagerðin og Landsnet hafa haft samstarf um leiðarval vegna Sprengisandsleiðar og Sprengisandslínu en mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna er að hefjast. Vegagerðin og Landsnet standa sameiginlega að kynningarfundum um matsáætlanir þessara verkefna.
Opið hús verður
- fimmtudaginn 13. nóvember í Rafveituheimilinu í Elliðaárdal, Reykjavík, kl. 16:00-19:00.
- þriðjudaginn 18. nóvember á Hótel KEA, Hafnarstræti 87 – 89 Akureyri, kl. 16:00-19:00.
Þar verða drög að tillögu að matsáætlun kynnt með útprentuðum gögnum og með upplýsingum á skjávörpum og tölvuskjám. Fulltrúar frá Landsneti, Vegagerðinni og ráðgjöfum verða á staðnum til að ræða við gesti.
Allir velkomnir!
Drögin að tillögunni er að finna hér á vef Vegagerðarinnar en fyrir línuna á vef Landsnets.