Áhugi á opnu hús bæði fyrir norðan og sunnan
vegna kynningar á drögum að matsáætlun vegna Sprengisandsleiðar
Töluverður áhugi reyndist vera fyrir opnu húsi vegna kynningar á drögum að matsáætlun vegna Sprengisandsleiðar. Um 50 manns sóttu kynninguna í Þingeyjarsveit fyrir norðan og um 70-80 manns fyrir sunnan á Hellu. Opið hús verður í Reykjavík í næstu viku. Gestir voru áhugasamir og gáfu sér yfirleitt góðan tíma til að kynna sér hvað felst í þessum framkvæmdum og þeim mismunandi valkostum sem kynntir eru.
Gert er ráð fyrir Sprengisandsleið á skipulagi svæðisins og vegurinn er einn af stofnvegum í grunnneti, ein af fjórum skilgreindum hálendisleiðum og þarf Vegagerðin að hyggja að því sem öðru. Eigi að síður er leiðin ekki á samgönguáætlun og til hennar hefur ekki verið áætlað neitt fé og verður ólíklega farið í framkvæmdir fyrr en í fyrsta lagi eftir 10-15 ár.
Ferlið sem nú fer af stað er til þess að kalla fram athugasemdir frá almenningi og hagsmunaaðilum enda um að ræða val á veglínu. Umfang vegarins, breidd og upphækkun í landi og fleiri tæknileg atriði verða einnig til umræðu og ákvörðunar síðar meir í ferlinu.
Eðlilega er skoðanir skiptar á verkefni sem þessu en nú gefst almenningi tækifæri til að skila inn athugasemdum vegna þessara draga að matsáætlun og er fresturinn til 20. nóvember. Sjá hér drögin og netföng til að skila inn athugasemdum.