Fréttir
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2014
í Hörpu 31. október
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í Hörpu, föstudaginn 31. október 2014. Þetta er sú þrettánda í röðinni, en kveðið er á í vegalögum um að 1,5% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs og er ráðstefnunni ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess starfs.
Þátttökugjald er 15.000 krónur og 4.000 krónur fyrir nema.
Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á þessum hlekk til og með miðvikudagsins 29. október.
Dagskrá:
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar | |
---|---|
08:00-09:00 |
Skráning |
09:00-09:15 |
Setning, Þórir Ingason (Vegagerðin) |
09:15-09:30 | Malbiksrannsóknir 2013 og 2014, ágrip KÞP, ágrip PP Katrín Þuríður Pálsdóttir (Verkís) og Pétur Pétursson (PP ráðgjöf) |
09:30-09:45 | Rannsóknir á klæðingum og klæðingarefnum, ágrip Pétur Pétursson (PP ráðgjöf) |
09:45-10:00 | Vinnsla steinefna til vegagerðar - handbók fyrir vegagerðarmenn, ágrip Hafdís Eygló Jónsdóttir (Vegagerðin) |
10:00-10:15 | Gæðastýring fyrir birgðir Vegagerðarinnar, ágrip Daníel Árnason (Vegagerðin) |
10:15-10:30 | Eiginleikar íslensks jarðvegs - úrvinnsla CPT mælinga, ágrip Ástgeir Rúnar Sigmarsson (HÍ) |
10:30-11:00 | Kaffi |
11:00-11:15 | Fjölnematíðnigreining á yfirborðsbylgjum, ágrip Elín Ásta Ólafsdóttir (HÍ) |
11:15-11:30 | Samanburður bormótstöðu við niðurrekstur og burðarþol staura, ágrip Guðmundur Þorsteinn Bergsson (Verkís) |
11:30-11:45 | Hornafjarðarós - Grynnslin - Sjávarborðsrannsóknir, ágrip Sigurður Sigurðarson (Vegagerðin) |
11:45-12:00 | Umræður og fyrirspurnir |
12:00-13:00 | Matur |
13:00-13:15 | Loftræsting jarðganga - uppfært reiknilíkan, ágrip Sigurður Páll Steindórsson (Mannvit) |
13:15-13:30 | Öryggi og heilbrigði á verkstað við útlögn bikbundinna slitlaga, ágrip Anna Jóna Kjartansdóttir og Ólöf Kristjánsdóttir (Mannvit) |
13:30-13:45 | Aðferðir við að meta kostnað umferðarslysa og virði lífs, ágrip Haraldur Sigþórsson (Samgöngustofa) og Vilhjálmur Hilmarsson (Mannvit) |
13:45-14:00 | Rafræn ferðavenjukönnun - Notkun snjallsíma við mælingar á ferðavenjum, ágrip Haukur Þór Haraldsson (Verkís) |
14:00-14:15 | Staða hjólreiða á landsvísu, aðferðafræði og ávinningur stefnumótunar, ágrip Eva Dís Þórðardóttir (Efla) |
14:15-14:30 | Umferðarhraði á vinnusvæðum og áhrif hraðatakmarkandi aðgerða, Björn Ólafsson (Vegagerðin) |
14:30-14:45 | Ísland allt árið eða hvað? ágrip Katrín Halldórsdóttir og Auður Þóra Árnadóttir (Vegagerðin) |
14:45-15:00 | Umræður og fyrirspurnir |
15:00-15:30 | Kaffi |
15:30-15:45 | Hvernig nota má umferðartalningar til að meta fjölda ferðamanna, ágrip Rögnvaldur Ólafsson (HÍ) |
15:45-16:00 | Könnun á legu útfalla og farvega fallvatna frá Síðujökli og stöðugleika þeirra, þegar jökullinn hörfar, ágrip Finnur Pálsson (HÍ) |
16:00-16:15 | Effects of Vegetation on Traffic-Related Particulate Matter, ágrip Jovana Alkalaj og Þröstur Þorsteinsson (HÍ) [Erindið verður flutt á ensku] |
16:15-16:30 | Sjávarstraumar og súrefnisbúskapur í Kolgrafafirði, ágrip Sveinn Óli Pálmarsson (Vatnaskil) |
16:30-16:45 | Áhrif síldardauða á lífríki hafsbotns í Kolgrafafirði, ágrip Valtýr Sigurðsson1,2,3, Jón Einar Jónsson2, Róbert A Stefánsson3, Árni Ásgeirsson2 og Jörundur Svavarsson1 (1Líf- og umverfisvísindadeild HÍ, 2Rannsóknasetur HÍ á Snæfellsnesi, 3Náttúrustofa Vesturlands) |
16:45-17:00 | Umræður og fyrirspurnir |
17:00 - | Ráðstefnuslit, léttar veitingar í boði Vegagerðarinnar |
Glærur og ágrip fyrirlestra verður hægt að finna á vef Vegagerðarinnar að ráðstefnu lokinni |