Fréttir
Kort af skriðunni í Köldukinn
unnið af Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands
Vegurinn við Ystafell á þjóðvegi 85 er enn lokaður en búast má við að eftir helgina eða upp úr 10 júni verði hægt að hefjast handa við að laga um 100 metra skarð í veginum sem aurskriðan frá því á þriðjudaginn (4. júní) olli. Reikna má með að það taki um 3 daga að gera við veginn en í hann vantar líklega eina 2000 rúmmetra af efni.
Skriðan var stór og aflmikil en talið er að hún hafi verði 200-250 metra breið. Hér fylgir kort sem sýnir stærðina vel og hvar hún hefur runnið niður hlíðina og yfir veginn.
Það var Ingibjörg Jónsdóttir hjá Jarðvísindastofnun Háskólans sem vann kortið.