Fréttir
  • Vetrarumferð

Þjónusta um páska

þjónusta verður á laugardag fyrir páska

26.3.2013

Auk færðarkorts, vegsjáar og vefmyndavéla er bent á síma 1777 fyrir upplýsingar um páskana. Á skírdag verður upplýsingaþjónustan opin frá 06:30 til 22:00, frá sama tíma á föstudaginn langa en þá eingöngu til kl. 14:00. Á laugardag verður þjónustan opin frá 06:30 - 22:00. En á páskadag er opið frá 08:00 till 14:00 en þá tekur bakvakt við. Hefðbundin vakt verður í upplýsingaþjónustunni á annan í páskum. 

Allar leiðir sem hafa 6 og 7 daga þjónustu verða einnig þjónustaðar á laugardag fyrir páska en Vegagerðin gerir þann fyrirvara að mokstur getur fallið niður ef veður verður vont og snjóalög mikil.

Vegfarendur athugið!  Færð á vegum er ekki könnuð á vettvangi nema á umferðarþyngstu vegum. Upplýsingar um færð og veður taka annars mið af gögnum frá veðurstöðvum og myndavélum.