Fréttir
  • Tjöruslettur á flutningabíl

Tjón vegna blæðinga bætt

tjón sem varð dagana 18. til 23. janúar

24.1.2013

Vegagerðin og Sjóvá, tryggingafélag Vegagerðarinnar, hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að bæta tjón á ökutækjum, sem sannanlega má rekja til blæðinga dagana 18. - 23. janúar sl. Þessi ákvörðun er tekin þrátt fyrir að orsök blæðinganna liggi ekki nákvæmlega fyrir og hefur því ekki fordæmisgildi.

Vegagerðin biður vegfarendur velvirðingar á því ástandi sem skapaðist og þeim óþægindum sem það hefur valdið. Jafnframt hvetja Vegagerðin og Sjóvá ökumenn til þess að gæta fyllstu varúðar og haga ávallt akstri í samræmi við aðstæður hverju sinni

 

 

 

Fréttatilkynning send út 23. janúar:

 

Tjón bætt vegna vetrarblæðinga

Tjón dagana 18. til 23. janúar

 

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hefur að undanförnu orðið vart við talsverðar vetrarblæðingar á Vestur- og Norðurlandi, einkum í Húnavatnssýslum vestan Blönduóss. Þó að atvik sem þessi séu ekki algeng hafa vetrarblæðingar þekkst um langt skeið. Ástandið sem skapaðist um og eftir sl. helgi var hins vegar óvenju slæmt. Ekki er að fullu ljóst hvað valdið hefur þessum óvenjulegu blæðingum. Þó virðist sem um samspil margra ólíkra þátta sé að ræða.

Vegagerðin og Sjóvá, tryggingafélag Vegagerðarinnar, hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að bæta tjón á ökutækjum, sem sannanlega má rekja til framangreindra blæðinga dagana 18. - 23. janúar sl. Eins og áður segir er ákvörðun þessi tekin þrátt fyrir að orsök blæðinganna liggi ekki nákvæmlega fyrir og hefur því ekki fordæmisgildi.

Vegagerðin biður vegfarendur velvirðingar á því ástandi sem skapaðist og þeim óþægindum sem það hefur valdið. Jafnframt hvetja Vegagerðin og Sjóvá ökumenn til þess að gæta fyllstu varúðar og haga ávallt akstri í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Vegfarendum, sem orðið hafa fyrir tjóni á ökutækjum sínum af völdum þessara blæðinga á áðurnefndu tímabili, er bent á að hafa samband við Sjóvá og fylla út tjónaskýrslu. Nánari upplýsingar eða aðstoð er hægt að nálgast hjá þjónustuveri Sjóvár í síma 440 2000.

Jafnframt býður Vegagerðin ökumönnum verulega óhreinna ökutækja af völdum tjörunnar að fá beiðni fyrir þrifum á næstu starfsstöð Vegagerðarinnar. Nánari upplýsingar um hvar starfstöðvar er að finna gefur Vegagerðin í síma 522-1000.