Fréttir
  • Harpa

Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2012

Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 9. nóvember

11.10.2012

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í Hörpu (salur: Kaldalón), þann 9. nóvember 2012. Þetta verður í ellefta sinn sem ráðstefnan er haldin.  

Kveðið er á í vegalögum að 1,5% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs og er ráðstefnunni ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess starfs.

Dagskrá

08:00-09:00
Skráning
09:00-09:15 Setning, Þórir Ingason (Vegagerðin)
09:15-09:30 LIDAR landlíkan af fyrirhuguðu vegstæði á Lónsheiði   - ágrip
Hersir Gíslason og Jón Erlingsson (Vegagerðin)
09:30-09:45 Gæðastýringaráætlanir  - ágrip
Einar Gíslason og Guðmundur Ragnarsson (Vegagerðin)
09:45-10:00 Roadex IV, Haraldur Sigursteinsson (Vegagerðin)  - ágrip
10:00-10:15 Kröfur til rýrnunar í íslenskri steinsteypu
Ólafur Wallevik (Nýsköpunarmiðstöð Íslands)
10:15-10:25 Umræður og fyrirspurnir


10:25-10:55 Kaffi


10:55-11:10 Verklag við breikkanir vega  - ágrip
Steinn Leó Sveinsson (Geotækni)
11:10-11:25 Kaldblandað malbik úr 100% endurunnu biki  - ágrip
Sigþór Sigurðsson (Hlaðbær Colas)
11:25-11:40 Umferð á hættu og neyðartímum  - ágrip
Herdís Sigurjónsdóttir (VSÓ)
11:40-11:55 Hjólreiðaslys á Íslandi  - ágrip
Sævar Helgi Lárusson (Rannsóknanefnd umferðarslysa)
11:55-12:05 Umræður og fyrirspurnir


12:05-13:00 Matur


13:00-13:15 Bifhjól og umferðaröryggi  - ágrip
Daníel Árnason (Vegagerðin) og Gunnar Gunnarsson (Sniglar)
13:15-13:30 Umferðaröryggisúttekt og lagfæringar á umhverfi vega - leiðbeiningar  - ágrip
Auður Þóra Árnadóttir (Vegagerðin) og Guðni P. Kristjánsson (Hnit)
13:30-13:45 Miðlun upplýsinga til vegfarenda um bílútvarp  - ágrip
Reynir Valdimarsson (Efla)
13:45-14:00 Tölvustýrt mat á ökuhæfni: Expert System Trafic  - ágrip
Claudia Georgsdóttir og Tinna Jóhönnudóttir (Landspítali, Grensásdeild)
14:00-14:15 Dreifilíkön umferðar  - ágrip
Grétar Mar Hreggviðsson og Smári Ólafsson (VSÓ)
14:15-14:30 Seltu-, raka- og hitamælingar fyrir hálkuvarnir á vegum  - ágrip
Skúli Þórðarson (Vegsýn)
14:30-14:45 Jökulvötn og samgöngur: Horft til framtíðar  - ágrip
Þorsteinn Þorsteinsson (Veðurstofan)
14:45-14:55 Umræður og fyrirspurnir


14:55-15:25 Kaffi


15:25-15:40 Almenningssamgöngur - Hraðvagnakerfi  - ágrip
Þorsteinn R. Hermannsson (Mannvit)
15:40-15:55 Umhverfislegur ávinningur af almenningssamgöngum á Vesturlandi  - ágrip
Hrafnhildur Tryggvadóttir (Environice)
15:55-16:10 Heildaráhrif þess að skipta út olíu í samgöngum með innlendu rafmagni og vetni
María Hildur Maack (HÍ)  - ágrip
16:10-16:25 Grindavíkurvegir, saga og minjar  - ágrip
Ómar Smári Ármannsson
16:25-16:40 Sögukort samgangna á Íslandi  - ágrip
Rögnvaldur Guðmundsson (Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar)
16:40-17:00 Umræður og fyrirspurnir


 17:00 - Ráðstefnuslit, léttar veitingar í boði Vegagerðarinnar
Ráðstefna 2012 - Dagskrá (pdf)

Veggspjöld sýnd á ráðstefnunni:


Fjaðurstuðull steinsteypu (Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Mannvit)

Kaldblandað malbik 100% endurunnið

  (Hlaðbær - Colas)

Mat á hönnunarflóði ómældra vatnasviða með notkun svæðisbundinnar tíðnigreiningar
(Philippe Crochet, Tinna Þórarinsdóttir, Auður Atladóttir, Veðurstofan)

Samanburður á umhverfisstjórnun vega- og gatnagerðar á Norðurlöndunum 
(Matthildur Bára Stefánsdóttir, Vegagerðin)