Fréttir
  • Bann við umferð þungra ökutækja á ÞIngvöllum

Umferð þungra ökutækja takmörkuð um þjóðgarðinn á Þingvöllum

bannað yfir átta tonnum en hópferðabílar mega áfram aka

8.6.2012

Takmarkanir hafa verið settar á umferð þungra ökutækja um þjóðgarðinn á Þingvöllum. Umferð vöruflutningabíla sem eru þyngri en 8 tonn er óheimil, en umferð allra hópferðabifreiða og áætlunarbíla verður áfram heimil um þjóðgarðinn. Umferð allra ökutækja með vatnsspillandi farm og hættulegan farm er bönnuð.

Bannið hefur þegar tekið gildi og hafa verið sett upp skilti við leiðir inn í þjóðgarðinn því til staðfestingar. Skiltin eru á Þingvallavegi (36) við Biskupstungnabraut (35), á Lyngdalsheiðarvegi (365) rétt við hringtorgið á Laugarvatni og á Þingvallavegi (36) við Vesturlandsveg (1).

Vegfarendur eru beðnir um að fylgja þessum reglum og bæta þannig umgegni um þjóðgarðinn á Þingvöllum.

Sjá mynd af skilti sem fylgir fréttinni.