Fréttir
  • Vegagerðin Sauðárkróki
  • Vegagerðarmenn á Króknum að lokinn móttöku á viðurkenningunni
  • Vegagerðarmenn á Króknum að lokinn móttöku á viðurkenningunni
  • Vegagerðarmenn á Króknum að lokinn móttöku á viðurkenningunni
  • Viðurkenningarskjöldurinn
  • Vegagerðin Sauðárkróki

Snyrtilegasta umhverfi stofnunar í Skagafirði

Vegagerðin fær viðurkenningu í annað sinn í ár

15.11.2011

Á dögunum fékk Vegagerðin á Sauðárkróki umhverfisviðurkenningu Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir snyrtilegasta umhverfi stofnunar. Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélagsins og Soroptimistaklúbbs Skagafjarðar.

Þetta var í sjöunda sinn sem viðurkenningar voru veittar en öll framkvæmdin hvílir á herðum kvenna í klúbbnum. Vegagerðarmenn á Sauðárkróki þakka kærlega viðurkenninguna en þetta er í annað sinn í ár sem Vegagerðin hlýtur viðurkenningu. Nýlega fékk Vegagerðin í Borgarnesi viðurkenningu fyrir snyrtilegustu lóð við atvinnuhúsnæði.

Sýnir að vegagerðarmenn kunna líka að taka til í kringum sig og halda umhverfi sínu snyrtilegu.

Fréttin um viðurkenninguna í Borgarnesi.