Fréttir
Verri reynsla af kvörtunum
viðhorfskönnun fyrir Vegagerðina - flutningsaðilar og verktakar
Flutningsaðilar eru ánægðari í ár með vegakerfið en í fyrra og þeir hafa betri reynslu af leyfisveitingum. Verktakar hafa betri reynslu af samskiptum við starfsmenn Vegagerðarinnar í útboðsverkum en verri reynslu af útboðsgögnunum sjálfum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðhorfskönnun sem Lausnir unnu fyrir Vegagerðina.
Áhyggjuefni er fyrir Vegagerðina að báðir hópar hafa nú sýnu verri reynslu af viðbrögðum við kvörtunum en síðustu ár. Á móti eykst töluvert ánægjan með símsvörunina hjá Vegagerðinni sem var þó góð fyrir.
Sjá könnunina og eldri kannanir hér á vef Vegagerðarinnar.