Endum rúntinn heima
Ætlunin er að ná til bifhjólafólks
Sniglar í samstarfi við Vegagerðina og Umferðasrstofu hafa reist sex skilti við þjóðveginn með áletruninni „Endum rúntinn heima“. Ætlunin er að ná til bifhjólafólks á ferðinni og hvetja til nærgætni og heilbrigðrar skynsemi við akstur bifhjóla um þjóðvegi landsins.
Allir vilja enda skemmtilegan rúnt slysalausan heima.
Skiltin eru á tveim stöðum á landinu, við borgarmörkin eða nánar tiltekið við Suðurlandsveg, Vesturlandsveg, Reykjanesbraut, Þingvallaveg og hinsvegar við Akureyri á leiðinni út úr bænum í suður og austur. Skiltin eru fyrsti hluti verkefnisins „Endum rúntinn heima“.
Bifhjólasamtök lýðveldisinns, Sniglar, vinna að forvörnum og hagsmunamálum bifhjólafólks.