30 milljónir aukalega í malarvegi á Vestfjörðum
Vegamálastjóri veitir aukafjárveitingu
Vegamálastjóri ákvað nýlega að veita aukalega 30 milljónum króna til viðhalds á malarvegum á sunnanverðum Vestfjörðum. Með því er vænst að vegirnir verði í heldur betra ástandi í sumar en verið hefur undanfarin ár þótt rétt sé að taka fram að þetta veldur engri byltingu en bætir ástandið nokkuð.
Féð verður notað á Dynjandisheiði, Vestfjarðavegi, Ketildalavegi, Örlygshafnarvegi og víðar.
Það sem til stendur að gera á sunnanverðum Vestfjörðum er að úr hefðbundinni viðhaldsfjárveitingu verður lokið við mölburð á Örlygshafnarvegi að Kollsvíkurvegi. Þá er einnig áætlað að styrkja Vestfjarðaveg í Gufudalssveit um Hjallaháls og Ódrjúgsháls.
Viðbótarfjarveiting fer til:
· Ljúka mölburði á Dynjandisheiði frá Barðastrandarvegi og norður að sýslumörkum.
· Viðhald vegar, brot og endurmótun á Vestfjarðavegi um Kjálkafjörð og Kerlingarfjörð.
· Brot og endurmótun á Ketildalavegi ásamt lagfæringu á fyllingu í Hringsdal.
· Brot og endurmótun ásamt rásagerð og ræsaniðursetningu á Örlygshafnarvegi um Hafnarfjall.
· Brot og endurmótun á hluta Tálknafjarðarvegar.
· Mölburður á hluta Vestfjarðavegar um Hjalla- og Ódrjúgsháls.
Hluti þessara aðgerða er hafinn.