A.m.k sex óska eftir að gera tilboð í Vaðlaheiðargöng
gögn frá fleirum gætu enn borist í pósti
Alls hafa sex aðilar skilað inn gögnum vegna forvals Vaðlaheiðarganga, hugsanlega berast gögn frá fleiri þátttakendum þar sem gögn með póststimpli fyrir klukkan 16:00 3. maí eru gild.
Þessir hafa óskað eftir að fá að gera tilboð í Vaðlaheiðargöng:
Fyrirtæki | Land | Staða | |
IAV/Marti | Ísland | Joint Venture | |
ÍAV hf | Ísland | ||
Marti Contractors Lts. | Sviss | ||
Ístak hf | Ísland | ||
Metrostav-Suðurverk | Ísland | Joint Venture | |
Metrostav a.s. | Tékkland | ||
Suðurverk hf. | Ísland | ||
Norðurverk | Ísland | Samstarfshópur | |
Árni Helgason ehf. | Ísland | ||
SS Byggir ehf. | Ísland | ||
Skútaberg ehf. | Ísland | ||
GV Gröfur ehf. | Ísland | ||
Rafeyri ehf. | Ísland | ||
Norðurbik ehf. | Ísland | ||
Per Aarsleff – JKP JV | Danmörk | Joint Venture | |
Per Aarsleff a/s | Danmörk | ||
JK Petersen Contractors P/F | Færeyjar | ||
Leonhard Nilsen & Sønner AS | Noregur | ||
Vegagerðin, fyrir hönd Vaðlaheiðarganga hf. auglýsti 28. mars sl. eftir þátttakendum í forval vegna jarðganga milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals, ásamt byggingu tilheyrandi forskála og vega.
Um er að ræða 9,5 m breið, 7,2 km löng jarðgöng í bergi, styrkingu ganga, raf- og stjórnbúnað þeirra, um 320 m langa steinsteypta vegskála og um 4,0 km langa vegi.
Heiti verkefnisins er: Vaðlaheiðargöng
Áætlaðar magntölur eru:
Gröftur jarðganga 500.000 m3
Sprautusteypa 25.000 m3
Steinsteypa 3.000 m3
Forskering 100.000 m3
Fylling 400.000 m3
Farið verður yfir göngin á næstu vikum og reikna má með að opna megi tilboð í Vaðlaheiðargöng seint í ágúst eða í septembermánuði í haust að loknu útboði með þátttöku þeirra sem standast útboðskröfur.