Fréttir
  • Axarvegur - Yfirlitsmynd

Axarvegur og Berufjarðarbotn: Verulega neikvæð áhrif

segir í áliti Skipulagsstofnunar

20.4.2011

Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum Axarvegar og Hringvegar um Skriðdal og Berufjarðarbotn samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b.

Helstu niðurstöður Skipulagsstofnunar eru að fyrirhugaðar framkvæmdir muni hafa verulega neikvæð áhrif á stórbrotið og tilkomumikið landslag á 6-7 km kafla í Berufjarðardal. Skipulagsstofnun telur ótvírætt að vegna landslagsaðstæðna á svæðinu sé ekki mögulegt að koma fyrir vegamannvirki, af því umfangi sem fyrirhugað er, sem gæti á nokkurn hátt fallið að landslaginu og sem hefði ekki í för með sér varanlegar breytingar á landslagi og ásýnd svæðisins. Þá telur Skipulagsstofnun að veglagning um Berufjarðarbotn sem mun raska leirum muni hafa verulega neikvæð og óafturkræf áhrif á fugla og leirur sem njóta sérstakrar verndar skv. lögum um náttúruvernd.

Sjá frétt og tengil á álit Skipulagsstofnunar