Fréttir
  • Héðinsfjarðargöng

Kostnaður við Héðinsfjarðargöng

villandi umræða um aukinn kostnað leiðrétt

14.3.2011

Í umræðu um Héðinsfjarðargöng hafa komið upp villandi upplýsingar um kostnað við göngin og samanburð á upphaflegri áætlun og endanlegri útkomu.

Uppreiknuð upphafleg áætlun er 12,1 milljarðar króna en uppreiknaður heildarkostnaður nam 14,2 milljörðurm króna. 

Í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir að heildarkostnaður við Héðinsfjarðargöng yrðu 7,6 milljarðar króna en áætlunin var gerð í janúar 2006.

Uppreiknað með meðalverðlagi ársins 2010 líkt og gert var í skriflegu svari innanríkisráðuneytisins við fyrirspurn á Alþingi um kostnað við Héðinsfjarðargöng og tvöföldun Reykjanesbrautar reiknast upphafleg áætlun vera 12,1 milljarður króna.

Heildarkostnaður við byggingu Héðinsfjarðarganga nam 12 milljörðum króna á verðlagi hvers tíma en uppreiknað með meðalverðlagi 2010 reiknast sá kostnaður 14,2 milljarðar króna.

Aukinn kostnaður við gerð Héðinsfjarðarganga, þ.e.a.s. 2,1 milljarður krónamiðað við upphaflegu áætlunina, skrifast fyrst og fremst á að vatnsagi í göngunum, sérstaklega Ólafsfjarðarleggnum, reyndist miklu mun meiri en reiknað var með. Einnig varð nokkur kostnaður af efnahagshruninu 2008.