Fréttir
  • Frá undirskriftinni

Samið um flug til Sauðárkróks og Vestfjarða

Vegagerðin og Flugfélagið Ernir gera með sér samning

9.12.2010

Nú síðdegis, 9. desember, skrifuðu fulltrúar Vegagerðarinnar og Flugfélagsins Ernis undir samning sem tryggir áframhaldandi flug til Sauðárkróks út næsta ár án styrkja og flug til Bíldudals út árið 2012 og til Gjögurs út árið 2011.

Samningurinn felur í sér nokkra hækkun á styrk til Vestfjarðaflugsins, en Flugfélagið Ernir tekur þó á sig aukna áhættu í fjárhagslegri útkomu á þeim flugleiðum, auk þess að freista þess að halda áfram áætlunarflugi til Sauðárkróks án ríkisstyrks næsta ár.

Sjá fréttatilkynningu.