Fréttir
  • Axarvegur - Yfirlitsmynd

Axarvegur  - Opið  hús vegna mats á umhverfisáhrifum

2.12.2010


Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um lagningu nýrra vega á Fljótsdalshéraði og í Djúpavogshreppi. Um er að ræða lagningu nýs Axarvegar og breytingar á Hringvegi í Skriðdal og um Berufjarðarbotn. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 19. nóvember 2010 til 7. janúar 2011 á skrifstofum Fljótsdalshéraðs og Djupavogshrepps og á bókasafni Hérðaðsbúa á Egilsstöðum. Einnig í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Ítarlegar upplýsingar er að finna í frummatsskýrslu og fylgigögnum hér á vefnum.

Allir hafa rétt á að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 7. janúar 2011 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.

Vegagerðin mun standa fyrir opnum húsum þar sem framkvæmdin og mat á umhverfisáhrifum hennar verða kynnt á veggspjöldum og tekið verður við ábendingum og athugasemdum.

Opin hús verða á:
Hótel Framtíð á Djúpavogi þriðjudaginn 7. desember kl. 17:00-19:00
Hótel Héraði á Egilsstöðum miðvikudaginn 8. desember kl. 17:00-19:00.


Allir eru velkomnir.