Fréttir
  • Vígsla Landeyjahafnar

Siglt til Landeyjahafnar

ef ekkert óvænt kemur uppá

4.11.2010

Dýpkun Landeyjahafnar gengur ágætlega enda eru aðstæður góðar. Komi ekkert óvænt upp, þá verður áætlun föstudagsins 5. nóvember eftirfarandi:

Fyrsta ferð verður frá Vestmanneyjum kl. 07:30 til Þorlákshafnar og frá Þorlákshöfn kl. 11:15. Eftir þá ferð er ætlunin að hefja siglingar í Landeyjahöfn að nýju samkvæmt áætlun fyrir þá höfn og verður fyrsta ferð frá Vestmanneyjum kl. 17:00 og til baka frá Landeyjahöfn kl. 18:30 og síðan önnur um kvöldið eins og áætlun segir til um.

Þeir farþegar sem eiga bíla í Þorlákshöfn fá akstur úr Landeyjahöfn til að komast í bílana. Biðjum væntanlega farþega að fylgjast með fréttum og upplýsingum á heimasíðu Herjólfs.