Námskeið um efnisrannsóknir og efniskröfur í vegagerð
Vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að halda þriðja námskeiðið um efnisrannsóknir og efniskröfur í vegagerð en fullt er á námskeiðin sem verða haldin 11. nóvember og 19. nóvember. Auka námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 2. desember frá kl. 09:00 - 16:30.
Vegagerðin og Nýsköpunarmiðstöð Íslands boða til námskeiðs um efnisrannsóknir og efniskröfur í vegagerð. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem koma að hönnun, framleiðslu, framkvæmd og eftirliti í vega- og gatnagerð.
- Gunnar Bjarnason, forstöðumaður jarðfræðideildar Vegagerðarinnar
- Hafdís Eygló Jónsdóttir, verkefnastjóri á jarðfræðideild Vegagerðarinnar
- Ingvi Árnason, deildarstjóri viðhalds og þjónustu á Norðvestursvæði Vegargerðarinnar
- Pétur Pétursson, forstöðumaður steinefna- og vegtæknideildar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Dagskrá námskeiðs:
- Kl. 09:00 - 09:10 Þátttakendur boðnir velkomnir
- Kl. 09:10 - 10:00 Fylling og styrktarlag: Gunnar Bjarnason
- Kl. 10:00 - 10:10 Kaffihlé
- Kl. 10:10 - 11:00 Burðarlag: Gunnar Bjarnason
- Kl. 11:00 - 12:00 Sýnataka og prófunaraðferðir - eiginleikar steinefna: Pétur Pétursson
- Kl. 12:00 - 13:00 Matarhlé
- Kl. 13:00 - 14:10 Malbik og klæðing: Pétur Pétursson
- Kl. 14:10 - 14:40 Malarslitlag: Gunnar Bjarnason
- Kl. 14:40 - 15:00 Kaffihlé
- Kl. 15:00 - 15:10 Gagnakerfi Vegagerðarinnar - námukerfi, rannsóknarkerfi, jarðtæknikerfi: Gunnar Bjarnason
- Kl. 15:10 - 16:10 Vinnsla steinefna til vegagerðar: Hafdís Eygló Jónsdóttir og Ingvi Árnason
- Kl. 16:10 - 16:30 Umræður
Námskeiðið er haldið í "Mótorskálanum" í húsakynnum Vegagerðarinnar í Borgartúni 7.
Námskeiðsgjald er kr. 20.000 sem greiðast að námskeiði loknu. Kaffi og meðlæti innifalið en þátttakendur fá klukkustundar hlé í kringum hádegið til hádegisverðar.
Skráning á námskeiðið þann 2. desember fer fram hér
Kennslugögn verða birt á heimasíðum Vegagerðarinnar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands að námskeiði loknu. Sérstakar viðurkenningar verða afhentar þeim sem sækja námskeiðið. Athugið að takmarkaður fjöldi þátttakenda kemst að á hvort námskeið.
Frekari upplýsingar veitir Pétur Pétursson, forstöðumaður steinefna- og vegtæknideildar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands s: 522-9382 / petur.p@nmi.is og Gunnar Bjarnason, forstöðumaður jarðfræðideildar Vegagerðarinnar s: 522-1000 / gunnar.bjarnason@vegagerdin.is