Fréttir
  • Strandavegur - Yfirlitskort

Strandavegur,  Djúpvegur - Geirmundarstaðavegur í Strandabyggð

11.10.2010

Vegagerðin kynnir hér með 2,8 km langa vegaframkvæmd á Strandavegi (643), af Djúpvegi í botni Steingrímsfjarðar að Geirmundarstaðavegi í mynni Selárdals til að fá úrskurð Skipulagsstofnunar um hvort framkvæmdin skuli sæta mati á umhverfisáhrifum. 

Jafnframt er fjallað um breytta legu Staðarvegar og Stakkanesvegar og tengingu Grænaness við Strandaveg. Ekki hefur verið sótt um framkvæmdaleyfi. Heildarlengd nýrra vega er tæpir 4,0 km og eru að mestu nýlagnir. Nýjar veglínur liggja að mestu leiti fjarri núverandi vegum.

Nýr kafli Strandavegar verður 8,0 m breiður. Aðrir vegir verða 4,0 m breiðir. Framkvæmdin er lokaáfanginn við að leggja bundið slitlag á leiðina milli Hólmavíkur og Drangsness.

Framkvæmdasvæði er í Strandabyggð og nýir vegir liggja um lönd jarðanna Hrófbergs, Stakkaness og Grænaness.

Stefnt er að því að framkvæmdir við verkið hefjist 2011 og að verklok verði 2012. Vegagerðin telur að framkvæmdin muni ekki hafa umtalsverð umhverfisáhrif.

Framkvæmdin telst ekki matskyld skv. 5. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 með síðari breytingum.

Tilgangur framkvæmdarinnar er að auka greiðfærni og umferðaröryggi.

Kynningarskýrsla
Uppdrættir