Bolungarvíkurgöng opnuð
göngin verða opnuð 25. september
Laugardaginn 25. september mun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Ögmundur Jónasson ásamt vegamálastjóra Hreini Haraldssyni opna Bolungarvíkurgöng fyrir almennri umferð.
Athöfnin fer fram á við gangamunnann Bolungarvíkurmegin kl. 13:30. Að henni lokinni verður ekið í gegnum göngin en Hnífsdalsmegin mætast bæjarstjórar Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur. Þeir ásamt ráðherra og vegamálastjóra opna síðan fyrir umferð í báðar áttir.
Að því loknu hefst hátíðardagskrá í íþróttahúsinu í Bolungarvík kl. 14:30.
Sjá fréttatilkynningu og staðreyndir um verkið.
Vefmyndavélar verða gangsettar að morgni 25. september. Hægt er að fara inn á vefmyndavélarnar með því að fara í flipann Umferð og færð og síðan í Vefmyndavélar vinstra megin á síðunni og opna síðan Vestfirði. Eða smella hér á vefmyndavélar á Vestfjörðum.