Fréttir
  • Herjólfur

Landaeyjahöfn aðalhöfn

áætlun miðast við siglingar í Landeyjahöfn

10.9.2010

Dýpkunarskipið Perlan lagði af stað til Landaeyjahafnar frá Reykjavík fyrir hádegi í dag og reiknað er með að það hefjist handa við dýpkun um leið og það kemur í Landeyjahöfn undir miðnætti.

Eins og fram hefur komið í fréttum undanfarna daga hefur gosefni úr Eyjafjallajökli safnast fyrir utan við mynni Landeyjahafnar með þeim afleiðingum að á fjöru lenti Herjólfur í erfiðleikum í innsiglingu hafnarinnar. Þessa dagana siglir því skipið milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar. Dýpkunarskipið Perlan lagði nú fyrir hádegi af stað til Landeyjahafnar og hefur vinnu við dýpkun innsiglingarinnar um leið og það kemur á staðinn eða um miðnætti í kvöld. Gera má ráð fyrir að þessi lota taki nokkurn tíma en ölduhæð ræður mestu þar um. Veður við suðurströndina hefur verið rysjótt eins og jafnan á haust‐ og vetrarmánuðum en Perlan verður til taks svo lengi sem þörf krefur.

Frá upphafi var gert ráð fyrir því að fyrsta vetur Landeyjahafnar þyrfti töluverðar dýpkunarframkvæmdir í höfninni en almennt ríkjandi suðvestanáttir munu þó eiga stærstan þátt í að fjarlægja gosefnið frá höfninni á haf út.

Í vetur verður Landeyjahöfn áfram aðalhöfn Herjólfs og áætlun miðast við siglingar þangað. Ef þær aðstæður skapast að dýpi verður ekki nægjanlegt mun skipið sigla í Þorlákshöfn en með ölduspám og tíðum dýptarmælingum mun gefast að minnsta kosti tveggja sólarhringa ráðrúm til breytinga á áætlun.