Fréttir
  • DSC_1084

Samið á næstu dögum um Suðurlandsveg

Kærunefnd útboðsmála hafnar kröfu Háfells ehf.

9.8.2010

Kærunefnd útboðsmála hafnaði 9. ágúst kröfu Háfells ehf. um að stöðva samningsgerð vegna Suðurlandsvegar, kaflans milli Litlu kaffistofunnar og Lögbergsbrekku: Hringvegur (1), tvöföldun Fossvellir –Draugahlíðar.

Vegagerðin var fyrir kæru Háfells langt komin með samninga við Ingileif Jónsson ehf. sem átti fjórða lægsta boðið en eftir fyrri kæru Háfells var ljóst að tilboð þeirra þriggja sem buðu lægst í verkið voru ógild. Stefnt er að því að samningsgerðinni um þetta verk muni ljúka á allra næstu dögum og framkvæmdir hefjast væntanlega mjög fljótlega í kjölfarið.

Sjá hér álit kærunefndarinnar um kröfuna um að stöðva samningsgerðina. Nefndin á eftir að taka afstöðu til sjálfrar kærunnar en hefur nú hafnað því að stöðva samningsgerðina.

Tilboð voru opnuð í tvöföldunina þann 20 apríl og bárust 15 tilboð. Það lægsta stóðst ekki kröfur Vegagerðarinnar en það næstlægsta gerði það og því hófust samningaviðræður við Vélaleigu AÞ. Það kærði Háfell og kærunefndin samþykkti í því tilviki að stöðva samningsgerðina og úrskurðaði svo að lokum að orðalag í útboðsgögnum varðandi fjárhagslegt mat á stærð verka sem fyrirtækið hafði unnið síðustu 3 ár væri ekki nógu skýrt og því væri ekki heimilt að ganga til samninga við fyrirtækið. Fram kom í greinargerð með úrskurðinum að tilboð Háfells væri ekki heldur gilt.

Vegagerðin óskaði því eftir frekari gögnum frá þeim sem áttu fjórða, fimmta og sjötta lægsta tilboðið. Ingileifur Jónsson ehf. átti það fjórða lægsta og stóðst kröfur og því var hafist handa við að semja við hann um verkið. Það kærði Háfell en kærunefndin hefur nú hafnað því að stöðva samningsgerðina.