Fréttir
Nýjung á ljósum við Bústaðaveg og Reykjanesbraut
Styttri biðraðir með breyttri stýringu umferðarljósa á álagstímum
Ný stilling umferðarljósa á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar verður virk miðvikudaginn 23. júní. Vinstri beygja frá Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut verður bönnuð á álagstímum og er það gert til að draga úr myndun biðraða við gatnamótin. Verst hefur ástandið verið síðdegis og teygja biðraðir sig þá langt eftir Sæbrautinni og einnig inn á Miklubraut með tilheyrandi töfum og slysahættu. Stilling umferðarljósanna byggir á umferðarmælingum á álagstímum.
Sjá frekar hér og á vef Reykjavíkurborgar.