Fréttir
  • Jól 2009

Þjónusta Vegagerðarinnar um jól og áramót

22.12.2009

Einungis á þeim leiðum sem hafa 7 daga þjónustu verður þjónusta á jóla- og nýársdag, en stefnt er að því að þá verði þessar leiðir almennt færar fyrir kl. 10:00.

Á aðfangadag og gamlársdag er gert ráð fyrir þjónustu til kl. 14:00 en ef þörf krefur til kl. 17:00. Það á þó ekki við um lengstu leiðir svo sem á Djúpvegi frá Súðavík til Hólmavíkur, Vestfjarðarvegi austan Brjánslækjar, frá Mývatni til Egilsstaða og frá Höfn í Vík. Þar hættir þjónusta í síðasta lagi kl. 14:00.

Á annan í jólum verður þjónusta á öllum leiðum samkvæmt almennum snjómokstursreglum.

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 1777 hjá upplýsingaþjónustu Vegagerðarinnar.