Vel heppnuð ráðstefna um rannsóknir Vegagerðarinnar 2009
Að þessu sinni voru 160 skráðir þátttakendur á hinni árlegu ráðstefnu um rannsóknir Vegagerðarinnar, sem nú var haldin í 8. sinn. Umfjöllunarefni var fjölbreitt að vanda og m.a. fjallað um hagkvæmnissamanburð á steyptu eða malbikuðu slitlagi, áhrif Kyoto sáttmálans á gæði sements, sandfok á Hringveginn, hagsveiflur og umferðarslys, ýmsar rannsóknir á jöklum, áhrif loftmengunar á sölu astmayfja og verkefni sem fjallar um félagsleg, efnahagsleg og menningarleg áhrif Héðinsfjarðarganga. Þá flutti Ómar Ragnarsson ráðstefnugestum hugvekju um vegagerð í lok ráðstefnunnar. Við slit ráðstefnunnar gat vegamálastjóri, Hreinn Haraldsson, þess að við stefnum ótrauð að því að halda ráðstefnuna með sama sniði að ári, þrátt fyrir allt krepputal.
Á ráðstefnunni voru kynnt 19 verkefni sem hafa fengið styrk úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar á þessu og síðasta ári. Það er þó aðeins hluti af þeim fjölda verkefna sem fá styrk, en árið 2009 fengu um 130 verkefni styrk upp á samtals yfir 152 milljónir króna. Umsóknir hafa þó alltaf verið mun fleiri og oft þurft að hafna góðum verkefnum.
Hluti ráðstefnugesta
Í vegalögum er bundið að a.m.k. 1,5 % af mörkuðum tekjum stofnunarinnar skuli renna til rannsókna og þróunar. Í raun er það þó svo að þessu hefur aldrei verið náð og í fyrirliggjandi tillögu að fjárlögum 2010 er gert ráð fyrir 139 milljón krónum til rannsókna Vegagerðarinnar, en ætti að vera vel yfir 200 milljónir, miðað við áætlaðar markaða tekjustofna Vegagerðarinnar í sömu tillögum. Óljóst er hvernig þessu mun reiða af í framtíðinni.
Skýrslur og niðurstöður rannsókna eru birtar hér á vefnum jafnóðum og þær liggja fyrir:
Upplýsingar og útgáfa => Rannsóknarskýrslur
Nú er hægt að nálgast ágrip af erindum á ráðstefnunni og einnig hægt að skoða glærur sem fyrirlesarar notuðu, sjá hér fyrir neðan
Dagskrá ráðstefnunnar með erindum og ágripum:
Dagskrá |
|
---|---|
08:00-09:00 | Skráning |
09:00-09:15 | Setning (Þórir Ingason, Vegagerðinni) |
Mannvirki |
|
09:15-09:30 | Hagkvæmnissamanburður - Steypt eða malbikað slitlag á fjögurra akreina veg (Ásbjörn Jóhannesson, NMÍ) - ágrip |
09:30-09:45 | Könnun á virkni mismunandi gerða slitblaða á snjótennur og plóga, hljóðmælingar, áhrif á umhverfi (Guðrún Jónsdóttir, Eflu og Daníel Árnason, Vegagerðinni) - ágrip |
09:45-10:00 | Straumhvörf í mælingum á slit- og skriðeiginleikum íslensks malbiks (Pétur Pétursson, NMÍ) - ágrip |
10:00-10:15 | Áhrif Kyoto sáttmálans á gæði sements (Ólafur Wallevik, NMÍ) |
10:15-10:25 | Umræður og fyrirspurnir |
10:25-10:55 | Kaffi |
Umferð |
|
10:55-11:10 | Sandfok á Hringveginn (Björn H. Barkarson, VSÓ) - ágrip |
11:10-11:25 | Leiðbeiningar um veglýsingu utan þéttbýlis. Ákvörðun um uppsetningu, gæðaviðmið og tæknilegar lausnir (Örn Guðmundsson, VSB verkfræðistofa) - ágrip |
11:25-11:40 | Kortlagning svartbletta með ArcGis landupplýsingakerfi (Hersir Gíslason, Vg) - ágrip |
11:40-11:55 | Umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga (Þorsteinn R. Hermannsson, Mannviti) - ágrip |
11:55-13:00 | Matur |
13:00-13:15 | Hagsveiflur, umferð og umferðaslysaþróun á Íslandi (Guðmundur Freyr Úlfarsson, HÍ) - ágrip |
13:15-13:25 | Umræður og fyrirspurnir |
Umhverfi |
|
13:25-13:40 | Yfirborðskortlagning íslenskra jökla (Tómas Jóhannesson, Veðurstofunni) - ágrip |
13:40-13:55 | Jökullón í Kverkfjöllum, þróun og jökulhlauphætta (Magnús Tumi Guðmundsson, HÍ) - ágrip |
13:55-14:10 | Jöklabreytingar í Austur-Skaftafellssýslu og áhrif þeirra á framtíðarskipulag samgangna (Hrafnhildur Hannesdóttir, HÍ) - ágrip |
14:10-14:25 | Sannprófun á skilyrðum vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmda (Katrín Sóley Bjarnadóttir, HÍ) - ágrip |
14:25-14:40 | Fuglalíf á endurheimtum vötnum á Vesturlandi (Svenja Auhage, Náttúrufræðistofnun Íslands) - ágrip |
14:40-14:50 | Umræður og fyrirspurnir |
14:50-15:20 | Kaffi |
Samfélag |
|
15:20-15:35 | Rannsókn á mannlegum þáttum tengdum umferðaröryggi (Stefán Einarsson og Haraldur Sigþórsson HR) - ágrip |
15:35-15:50 | Áhrif loftmengunar á sölu astmalyfja á höfuðborgarsvæðinu (Hanne Krage Carlsen, HÍ) - ágrip |
15:50-16:05 | Könnun á aðferðum við að koma snjóflóðum af stað (Harpa Grímsdóttir, Snjóflóðasetri Veðurstofu Íslands á Ísafirði) - ágrip |
16:05-16:20 | Áhrif af gerð hjáleiða framhjá þéttbýli (Hrafnhildur Brynjólfsdóttir, Verkís) - ágrip |
16:20-16:35 | Samgöngubætur og byggðaþróun: Félagsleg, efnahagsleg og menningarleg áhrif Héðinsfjarðarganga á mannlíf á norðanverðum Tröllaskaga (Þóroddur Bjarnason og Kjartan Ólafsson, Háskólanum á Akureyri) - ágrip |
16:35-16:50 | - opið - |
16:50-17:00 | Umræður og fyrirspurnir |