Fréttir
  • Umferð í Reykjavík

Áhættuhegðun ungra ökumanna

Morgunverðarfundur 9 september kl. 8 -10 á Grand Hótel

8.9.2008

Áhættuhegðun ungra ökumanna

Lýðheilsustöð-slysavarnaráð og Umferðarráð standa fyrir morgunfundi um áhættuhegðun ungra ökumanna 9 september kl. 8 -10 á Grand Hótel

Fundarstjóri verður Björn Malmquist Tveir hollenskir sérfræðingar auk sérfræðings frá Umferðarstofu munu halda fyrirlestra og rými verður fyrir spurningar og umræður.

Slys í umferðinni eru ein helsta dánarorsök ungs fólks á aldrinum 17 til 24 ára í OECD-löndunum. Árið 2004 leiddi OECD saman ráðgjafanefnd sem ætlað var að kanna og skilja þá þætti sem hafa áhrif á slysatíðni ungra ökumanna og leita leiða til að draga úr þessum háa fórnarkostnaði.

Fyrst tekur til máls Divera Twisk, erindið sem hún flytur nefnist „Young drivers: the road to safety - Recommendations from the OECD International Expert Group“.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um þær nálganir sem nefndinni þóttu vænlegar til árangurs og hvernig koma megi þeim í framkvæmd. Nefndin komst einnig að því að ákveðnar reglur og leiðir sem ætlað er að draga úr þessum vanda eru ekki áhrifaríkar og sumar jafnvel skaðlegar. Divera Twisk er sviðsstjóri rannsókna á mannlegri hegðun hjá SWOV, stofnun um umferðarrannsóknir í Leidschendam. Stofnunin er þverfagleg rannsóknarstofnun sem hefur að markmiði að efla öryggi á vegum úti með stuðningi vísindalegra rannsókna. Helstu rannsóknaráherslur Diveru Twisk eru mynstur slysa, ungir ökumenn og námsferli þeirra auk nálgana sem skoða mannlega þætti. Divera Twisk situr í fjölmörgum alþjóðlegum nefndum er varða umferðaröryggi.

Næsti fyrirlesari er Willem Vlakveld. Erindi hans nefnist „Why do young novice drivers have such a high crash rate?“

Fjölmargar ástæður liggja á bak við háa slysatíðni ungra ökumanna. Meðal þeirra er hæfni til að meta eigin getu og einnig hvernig einstaklingurinn skynjar áhættu. Undirliggjandi þættir voru settir fram í eftirfarandi þyrpingar; 1) aldur, kyn og þroski í heilastarfsemi, 2) menntun, þjálfun og lífstíll, 3) skert hæfni í akstri; áfengi, ólögleg vímuefni, en einnig; þreyta, tilfinningar og truflanir, 4) skynjun, greining aðstæðna, ákvarðanataka og 5) bílnotkun. Willem Vlakveld starfar einnig hjá SWOV í Leidschendam. Helstu rannsóknarefni hans eru ungir ökumenn, ökukennsla, áhrif refsipunkta og rannsóknir á áhættuskynjun og þjálfun. Vlakveld starfaði áður sem ráðgjafi varðandi öryggi á vegum í samgönguráðuneyti Hollands.

Síðasti fyrirlesari er Holger Torp, verkefnastjóri ökunáms hjá Umferðastofu, og hann segir frá námskeiði vegna akstursbanns og árangur af því.

Ökumenn sem hafa bráðabirgðaskírteini fara í akstursbann fái þeir fjóra refsipunkta eða fleiri í ökuferil, og verða að ljúka sérstöku námskeiði og endurtaka ökupróf til að fá ökuskírteini að nýju. Sama á við um þá ungu ökumenn sem fá sviptingu af einhverju tagi, þeir þurfa líka að sitja þetta sérstakt námskeið og endurtaka ökuprófið.

Skráning fer fram í gegnum vef Lýðheilsustöðvar (www.lydheilsustod.is/skraning) og þátttökugjald er 2000 krónur.

Frestur til að skrá sig er til kl. 12 á hádegi mánudaginn 8. september.

DAGSKRÁ FUNDARINS

08.00 Fullnaðarskráning / morgunverðarhlaðborð

08.20 Setning fundar – Karl V. Matthíasson, formaður umferðarráðs Ávarp – Kristján Möller, Samgönguráðherra

08.30 Young drivers: the road to safety - Recommendations from the OECD international expert group Fyrirlesari Divera Twisk: sviðsstjóri rannsókna á mannlegri hegðun hjá SWOV, stofnun um umferðarrannsóknir í Leidschendam, Hollandi

09.00 Why do young novice drivers have such a high crash rate? Fyrirlesari Willem Vlakveld: rannsakandi hjá SWOV, stofnun um umferðarrannsóknir í Leidschendam, Hollandi

09.30 Námskeið vegna akstursbanns og árangur af því Fyrirlesari Holger Torp, verkefnastjóri ökunáms hjá Umferðarstofu

09.45 Umræður og fyrirspurnir

10.00 Fundarslit - Brynjólfur Mogensen, formaður slysavarnaráðs