Fréttir
  • UndirskriftReykjanesbraut

Skrifað undir samning við Ístak um Reykjanesbrautina

Ístak lýkur tvöföldun Reykjanesbrautarinnar um miðjan október

2.5.2008

Í dag, 2. maí, var skrifað undir samning milli Vegagerðarinnar og Ístaks hf um tvöföldun Reykjanesbrautarinnar (41), Strandarheiði – Njarðvík eftir endurútboð.

Vegagerðin hafði áður hafnað tilboði Adakris / Topp verktaka í verkið þar sem verktakinn stóðst ekki þær kröfur sem Vegagerðin gerir.

Tilboð Ístaks í verkið hljóðaði upp á ríflega 807 milljónir króna.

Undirverktaki vegna malbikunar verður Hlaðbær – Colas malbikunarstöð og eftirlit verður í höndum Mannvits hf. Ístak hyggst hefjast handa mánudaginn 5. maí.

Áætlað er að þann 16. október verði unnt að aka útboðskaflann á fjórum akreinum.

Á myndinni eru þeir Loftur Árnason framkvæmdastjóri Ístaks og Jónar Anæbjörnsson svæðisstjóri suðvestursvæðis að skrifa undir samning. Hann var síðan vottaður af starfandi samgönguráðherra Össur Skarphéðinssyni og nýsettum vegamálastjóra Hreini Haraldssyni.