Fréttir
  • Gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar

Opinn íbúafundur um gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og Miklabraut í stokk

16.4.2008

Miðvikudaginn 16. apríl verður haldinn opinn íbúafundur á vegum Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar og Hverfisráðs Hlíða um gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og Miklabraut í stokk.

Fundurinn verður haldinn í Skriðu í Kennaraháskólanum og hefst hann kl. 17.00 - 19.00. Allir velkomnir.

Dagskrá:

  • Formaður Hverfisráðs Hlíða Kjartan Eggertsson setur fundinn
  • Formaður Umhverfis- og samgönguráðs Gísli Marteinn Baldursson kynnir stefnu borgarstjórnar
  • Kynning á fyrirliggjand tillögum að gatnamótum og stokk undir Miklubraut
  • Kynning á hugmyndum Íbúasamtaka Hlíða, Holta og Norðurmýrar og Íbúasamtaka Háaleitis
  • Fyrirspurn og umræður

Fundarstjóri: Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða.

Miklabraut - Kringlumýrarbraut

Framkvæmdasvæði - Afstöðumynd