Fréttir
  • Vetrarfærð
  • Jólin 2007

Þjónusta um hátíðirnar

Vegagerðin óskar landsmönnum gleðilegra jóla

22.12.2007

Þjónusta Vegagerðarinnar yfir jólahátíðina verður sem hér segir:

Á öllum leiðum sem hafa 7 daga þjónustu verður þjónusta á jóla- og nýársdag, en stefnt er að því að þá verði þessar leiðir almennt færar fyrir kl. 10:00.

Á aðfangadag og gamlársdag er gert ráð fyrir þjónustu til kl 14:00 en ef þörf krefur til kl 17:00. Það á þó ekki við um lengstu leiðir svo sem á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, á Djúpvegi frá Súðavík til Hólmavíkur og Vestfjarðarvegi austan Brjánslækjar. Þar hættir þjónusta í síðasta lagi kl. 14:00.

Á annan í jólum verður þjónusta á öllum leiðum samkvæmt almennum snjómokstursreglum.

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 1777 hjá upplýsingaþjónustu Vegagerðarinnar.

Jólin 2007