Fréttir
Vegagerðin og Roadex efna til ráðstefnu um umferðarlitla vegi á norðurslóðum
Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 21. september 9:00 – 16:00 á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík.
Aðgangur á ráðstefnunna er ókeypis en skráning er nauðsynleg. Hægt er að skrá sig með því að senda póst á netföngin: da@vegagerdin.is eða has@vegagerdin.is
Roadex verkefnið fjallar um gerð, uppbyggingu og rekstur fáfarinna vega á norðurjaðarsvæðum Evrópu. Fjallað verður um eftirtalin efni, en skýrslur Roadex um þau hafa verði þýddar yfir á íslensku.
Efni ráðstefnunnar:
- Hjólfaramyndun á fáförnum vegum – Varanleg formbreyting
- Ný tækni við meðhöndlun á rakadrægu jarðefni
- Hönnun og viðhald vega með skert burðarþol á þáatíma
- Félagsfræðileg áhrif ástands fáfarinna vega
- Vegir um mýrlendi
- Afvötnun fáfarinna vega
- Umhverfisleiðbeiningar og gátlisti um umhverfismál
- Eftirlit og mælingar á fáförnum vegum
Fyrirlestrar fara fram á ensku.