Fréttir
  • Nú segjum við stopp

Nú segjum við stopp

13.9.2006

Efnt verður til borgarafunda samtímis á sjö stöðum á landinu fimmtudaginn 14. september kl. 17.15 undir yfirskriftinni "Nú segjum við stopp!" Tilefni fundanna er sú alda umferðarslysa sem skollið hefur á landsmönnum að undanförnu. Borgarafundirnir verða haldnir í Hallgrímskirkju í Reykjavík, Stapanum í Reykjanesbæ, Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, Menntaskólanum á Egilsstöðum, Akureyrarkirkju, Ísafjarðarkirkju og í Borgarneskirkju.

Þegar þetta er ritað hafa 19 manns látið lífið í umferðarslysum á Íslandi það sem af er árinu. Mörg slysanna má rekja til áhættuhegðunar ökumanna. Því er ljóst að þörf er á róttækri hugarfarsbreytingu í umferðinni.

Fundirnir verða allir með sambærilegu yfirbragði. Á þeim verða flutt stutt erindi fólks sem hefur upplifað það áfall og þá sorg sem fylgir alvarlegum slysum í umferðinni. Ennfremur munu lögreglu- eða sjúkraflutningamenn lýsa reynslu sinni af vettvangi auk þess sem samgönguráðherra mun í Reykjavík flytja þjóðinni aðgerðaráætlun stjórnvalda gegn umfeðarslysum. Úti á landi munu fulltrúar ráðherra flytja ræðu hans. Stutt tónlistaratriði verða á milli erinda og öllum fundunum lýkur með bæn.

Í lok fundanna verður opinberuð heimasíða þar sem landsmenn geta undirritað áheit um bætta hegðun og ábyrgð í umferðinni. Gert er ráð fyrir að samgönguráðherra muni ásamt fulltrúum stjórnmálaflokkanna setja nafn sitt þar undir.

Stopp1